He that knows least commonly presumes most.. Thomas Fuller

My world..

24.09.2007 22:21:39 / hilla

Ég varð móðir í fyrsta sinn fyrir 10 árum í dag:)

 

Ástarknúsið mitt innilega til hamingju með 10 ára, afmælið þitt í dag:)

En ég er með aðra síðu síðan í sumar, sem ég

ákvað að borga fyrir en hún er fín:) Ekki vera hrædd

við að biðja um leyniorðið inn á albúmin og videóin:)

Knús í krús og innilegar kveðjur til allra

verið góð við hvert annað, þið vitið aldrei hvaðan fólk er að koma

eða hvað það á eftir að fara eða hvenær. Be nice

  http://www.123.is/gummioghildur/


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.08.2007 12:05:59 / hilla

Klukkuð

Jæja Kristjana bara búin að klukka mig.. 

Hérna eru þá 8 staðreyndir um mig..

- Ég er íslenskur sjávarplássbúi ..

- Ég byrja í add coach academy eða Addca 18 september..

- Ég á þrjú systkyni og eitt af því tvíburi minn.

- Ég á þrjá gullfallega syni

-Ég bý með Gumma unnusta mínum og auðvitað sonunum.

-Ég er pasta og humarsúpu sælkeri

-Mér finnst hrikalega gaman í keilu og pool.

- Mér finnst ekkert skemmtilegra en að vera í góðra vina hópi að spila..

Ég ætla að klukka Gumma minn, Ásdísi, Höllu Rós, Fanney, Þórunni Lilju, Gígju Rós, og Heiðrúnu:)


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.08.2007 11:42:32 / hilla

Afmæli..

Amma mín á afmæli í dag hún er 90 ára.

Elsku amma til hamingju með það..

Ég hef ákveðið að halda hér aðeinst til, samt ekkert persónulegt, ég fór í baklás með þessa síðu hérna því mér fannst of persónulegt að skrifa eitthvað sem ókunnugir væru að lesa og dæma.

Og ég er enn að spá í þessu en ákvað þetta í bili.

Svo ég segi:

 brostu framan í heiminn og ákveddu að hann brosi framan í þig:)

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 19:40:31 / hilla

Grey friday..

Grey friday...........

myspace layouts, myspace codes, glitter graphics


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 11:51:23 / hilla

Kvikmyndagerðarmaðurinn

 Góðan daginn:P

Gummi innilega til hamingju með útskriftina þína síðastliðinn laugardag, ég er svo stolt af þér unnusta mínum kvikmyndagerðamanninum.. Mest sexý maður í heiminum;)

Ég elska þig af öllu mínu hjarta

  litli kúturinn og Guðmundur kvikmyndagerðarmaður

miðkúturinn og svo elsti kúturinn:)

 

 

 

Aðaltöffararnir í bænum:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 13:49:18 / hilla

Það er komið sumar:Þ

Sól og sumarylur

Gummi ástin mín til hamingju með afmælið á föstudaginn:)

Og Guðbergur að sjálfsögðu:)

Ég ætla að njóta blíðunnar og fara í heita pottinn..

Hafaða bara næs;)

ALLIR njóti blíðunnar;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 23:31:58 / hilla

Daginn gott fólk

 

Life is wonderfullest:P

 

Lend yourself to others but give yourself

too yourself:!:


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.04.2007 20:55:57 / hilla

Great days:)

Sælt veri fólkið kominn tími til að blogga eitthvað

sniðugt...

 

Ákvað að gefast upp á þessu bloggdóti hérna á undan eftir þessa einu færslu, í tíu ár eða eitthvað...

Anywho ég er bara að njóta þess að eiga svalir þessa dagana en það er mjög gaman:)

Jæja ég hef ekkert meira að segja í bili ætla að kíkja í smá spilakvöld með henni Guðnýju minni cutie pie:)

Hérna er snúllinn minn sem fór að rúlla sér yfir á bakið í gær:)

Ég ákvað að deila með ykkur brosi sem yljar mér um hjartarætur:)

 

 

 Og hérna ein af frændunum:)

 

 Hafiði það sem allra best:)

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.03.2007 11:49:31 / hilla

Nýja síðan

Sælt veri fólkið er komin með nýja síðu

með Gumma:) Búin að laga dæmið...

http://gummioghildur.blog.is/blog/gummi_og_hildur/

Kíkiði:)

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.03.2007 09:02:21 / hilla

Seinasta helgi

 Er einhver annar en við sem finnst tíminn hreinlega vera að fljúga áfram á extra hraða??

Við, fórum smá skógar ferð í Elliðarárdalinn það var mjög flott, fyrir utan að það var búið að höggva fullt af trjám og drumbarnir skildir eftir bara við hliðina á stubbunum, þetta var mjög sorgleg sjón.. Kræst ég var svo reið.. En sem betur fer var skógurinn enn þá þarna á staðnum.\Það var mjög kalt þarna.. Við keyptum burðabelti til að vera með kútinn í og þarna erum við í Elliðarárdalnum:)

Ég er reyndar búin að skipta um háralit:Þ eftir þessa mynd síðan seinustu helgi.. Jæja hafið það gott fólk:)


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.03.2007 11:55:14 / hilla

Þórarinn snillingur:)

Ágúst og Þórarinn voru að tala saman áðan inni á baði og Þórarinn segir: þegar ég var í maganum á guði, og þá segir Ágúst þú varst ekkert í maganum á guði þá segir Þórarinn jú þegar ég var engill,,

Það sem honum dettur ekki í hug að segja það er ótrúlegt..

Hann var að tala við kennarann sinn sem spyr hann hvernig það gengi að vera búið að eignast lítinn bróður(systkyni) þá segir hann: ja það er breyting, já nú, já það var breyting fyrir Ágúst í þrjú ár eftir að ég fæddist..

Svo voru Dagbjört og hann að reyna að fá að gista saman og pabbi hennar sagði nei í það skiptið, þá segir Þórarinn við hann hún Dagbjört er svo leið "viltu" ekki hugsa málið???

Hann er algjört krútt:)

Það eru endalausar sögur sem hægt er að segja af því sem hann segir, þetta er bara það sem ég man núna..\  Töffari:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 16:55:06 / hilla

Hús og hýbíli

Kæru landsmenn og konur;)

 Það er allt gott að heyra frá okkur, ég alltaf jafn ástfangin af manninum mínum sem hefur gefið mér ótrúlega mikið, æðislegur hreint út sagt, hérna með litla kútinn okkar;) kjútí pæs:Þ

Miðbarnið mitt bað um að fara í lautaferð, í dag og tók með sér popp-poka  epli og eplatrópí.. hann er endalaust fyndinn:lol: Hann er soddann prófessor þ.e hvernig hann talar.. Þess á milli sem ýmindunaraflið nýtur sín:) Og lýtur út fyrir að vera allavega ári eldri en hann er, hann er svo stór.. Og þessi elsti alveg með unglingaveikina á hreinu,, stundum get ég ekki haldið andliti, og á fótunum fjör að launa með að komast afsíðis svo ég hreinlega springi ekki úr hlátri þegar þeir eru grafalvarlegir að segja mér eitthvað... Vond mamma ha??

En svona er þetta á stóru heimili er margt að gerast:)

Maður er nú farin að spá í stóru húsi fyrir svona stóra fjölskyldu, vonandi fyrr en síðar þó það sé nú ekki plássleysi hérna hjá okkur.. Kannski bara löngun um að komast á jarðhæð og losna við nábúana, það væri voða næs að geta bara hugsað um sig, sína lóð og sitt hús.. Ok er aðeins meira en lítið farið að klæja í stærra...

Eitthvað svona kannski??

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 22:44:46 / hilla

I love u snow much

Hæ hæ eða æ eins og unginn minn segir:)

Úti er alltaf að "snjóa" ég var að vona að sumarið færi að "koma" en hver vill ekki svona rómantíska snjókomu með feitum snjókornum sem falla til jarðar eins og bómullahnoðrar:)

"Kósí" ekkert er meira kósí en það að njóta stundarinnar með manninum sínum, kertaljósum, og snjókomu úti á föstudagskvöldi eða í göngutúr:)

 Það er ekki til stúlka heppnari en ég, ég er svo ástfangin af manninum mínum:) Það er ekki til fullkomnari unnusti í öllum heiminum... Im soooo in lluuvv;) Im so lucky;)



 

 

 

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.02.2007 03:12:28 / hilla

Þrítug hún á afmæli...

Hæ ég heiti Hildur fyrir ykkur sem þekkið mig ekki "lengur" :lol: æjæjæj, og ég varð þrítug síðastliðinn föstudag, whoopí fyrir mig frábært og já til hamingju Helga;) við deilum þessu víst:)

Málið er bara það að það virtist í hvert skipti sem einhver óskaði mér til hamingju með afmælið sagði mannesjan um leið bara komin á "fertugsaldurinn"

HOLD ON sko...

He he rólegan ég stökk bara úr því að verða þrítug í fertug í leiðinni bara sísvona.. Eða það fannst mér á öllum sem sögðu þetta og glottu íllu:klikk:glotti  árans:evil: Anywho þá er Shakira nákvæmlega að verða þrítug í dag viku yngri en ég og Helga upp á hár, og ég er viss um að enginn reyni að koma henni í fertugt um leið og hún verður þrítug sjáiði það kannski fyrir ykkur í veislunni, bara Tom Cruise og kellan að mæta á svæðið: Hey Shakira happy 30th birthday, just got in your four'ties yes. we got you this botox giftcard at a really great plastic sergant..   Nei sko ég er unglamb þið skiljið its oll in ðe mænd sko not the feis.. Heyrðu sko og svo er það hún amma mín hún er að verða níræð eða nítíu ára gömul og ég sé það fyrir mér að fólk segi við hana "hva bara komin á tíræðis aldurinn og geri hana hundrað ára um leið og hún verður bara 90ára.. Ég held hún hefði eitthvað um það að segja hún amma mín!!!!                                              Sko talandi um hratt lifandi þjóðfélag..

Jæja veriði nú góð við mig og hættiði þessu fertugsbulli ég var bara stökkva um eitt ár eins og þið hin, ekki heil tíu þó það sé á núlli og sé nýr áratugur gimmý a breik pípol... og eigið fínan dag og til hamingju:) Shakira my friend happy birthday;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.01.2007 00:33:05 / hilla

Halló

Góðan daginn8)

Þið sem ekki hafið heyrt um brandarann með ljóskunni í háskólanum þá skal ég segja hann hér og nú: hvað var ljóskan að gera í trénu fyrir utan háskólann??

Að velja sér grein:lol:

Takk fyrir


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Síðan ég fæddist
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 734542 dögum
Dreams

 

Klukkan
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 24 september